blaður flaður en lítið daður;)

brostu allan daginn:)

21.01.2008 14:39:02 / thuridurr

Ný bloggsíða

já viti menn og konur ég er komin með nýja bloggsíðu

rafvirkja.bloggar.is 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 22:26:17 / thuridurr

Deigurinn sígur ekki....

já ég held áfram að blogga og jújú mikið rétt, hlegin var æði samt mjög róleg og ljúf enginn asi bara dúll;) líkaði það vel góður matur og góður hópur en vantaði auðvitað eina, en hún kemur vonandi í næsta hóf:P ferðalagið var smá langt og mikið er ekki gaman að keyra þetta ein, en ég var samt svo heppin að pikka upp puttaling á leið minni suður. Hún var rússnesk og nýútskrifuð sem túlkur og talaði og talaði og malaði og malaði:P hehe en annars fræddi hún mig um margt t.d. vodka og vitiði það á ekki að drekka vodka útí gos!!!!! já þá verður maður þunnur8| hverjum hefði dottið það í hug??? já maður á að drekka vodka t.d. með safa heæst tómatsafa og ekki blanda hann sko! og svo eitt annað ráð ekki drekka eitthvað léttara á eftir vodka heldur byrja frelar dauft og hækka sig upp eða vera bara í sterku:P já þetta var nú fróðleikur útaf fyrir sig:P en já það sem annars er framundan er að ég fer suður á morgun það á að jarða hann Birgi frænda minn, bróður hans afa á föstudag blessuð sé minning hans.

Kem austur aftur á föstudagskvöld, er búin að lofa KFC á sambýliskonuna :P þannig það verður sona fíesta á fös kvöld:P hehe

 

en já ekkert meira í bili 

líf og fjör 


» 16 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 22:01:05 / thuridurr

Þá er að koma að því...

jújú mikið rétt komin miðvikudagur og stutt í helgina og þá verður bústaðarferðinn mikla hjá okkur rósunum:P hlakka sko ýkt mikið til:D:D mín ætlar suður bara strax eftir hádegi og bruna eins og óð hæna suður á bóginn ;) vikan er búin að vera lala fram að þessu ekki mikið að ske eiginlega frekar lítið sko:S búið að vera kalt frekar nema seinni partinn í dag þá fór að hlýna og mikið var það gott að fara svo í sund áðan á eskifirði og synda og njóta góða veðursins ;) algjör snilld:) núna eru að byrja tíu fréttir og mín má nú ekki missa af þeim :P þangað til næst

Líf og fjör 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 20:33:19 / thuridurr

Helgin að baki

jæja helgin er búin og enn ein vinnuvikan byrjuð, vá ég væri næstum til í að fara í skóla bara og læra... JE right hehehe ekki sjéns hehe, neinei en helgin var fín héldum partý á laugardagskvöld, sem lukkaðist bara vel fullt af fólki á öllum aldri og allir í góðu skapi fór í bælið rúmlega 3 eftir gott kvöld, í gær var svo kíkt á rúntin í "góða veðrinu" einmitt 20 m/s og rigningu dauðans hvað er svoleiðis rigning kölluð á fræðimáli??? ég veit það allavega ekki. í gærkvöldi var svo reynt að horfa á nokkrar myndir ég segi nokkrar þar sem það gekk frekar brösulega að finna rétta mynd og svo að horfa á hana alla, þannig við horfðum á 3 hálfar myndi voða gaman :S en annars er komin mánudagur sæmilegur dagur í vinnunni og svo var matur hér áðan handa vinnandi fólki Fanneyju og strákunum hennar og Ása

Jæja ætla að fara að gera eitthvað að viti læt í mér heyra;)

Líf og fjör 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 11:38:10 / thuridurr

í ökla eða eyra

já það er ýmisst í ökla eða eyra hehe þessar blessuðu færslur en hvað um það:P en núna er klukkan sem sagt orðin rúmlega hálf tólf, og mín búin að afreka þónokkuð, fór á lappir fyrir kl 8 :D, búin að læra að skipta um olíu á bílnum mínum og skipta um olíusíu:D  þetta er bara snilld sko þannig nú get ég gert þetta þegar þess þarf ;) já svo er ég búin að taka til heima, henda í þvottavél og er núna hjá fanney að bíða eftir að við skellum okkur í hérað með peyjana til "afa og ömmu" svo á að vera smá partý í kveld sona fyrir vini og vandamenn hér á svæðinu en auðvitað eru utanaðkomandi vinir velkomnir:P það er nú lítið að frétta annars, skellti mér í bíó í gær á ASTRÓPÍU frekar mögnuð mynd sko hehe soldið öðruvísi en kúl :P en jæja nóg í bili

Líf og fjör 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 17:01:23 / thuridurr

Rólegheit eða hvað????

já maður hefði nú haldið að maður væri komin ú rhasarnum hér fyrir austan en það er sko alls ekki þannig hehe, hvað kjánar koma á skútu til Fáskrúðsfjarðar, sem er full af dópi!!! já og spyrja til vegar bara rugl og bull hehe, greinilega ekki mikil hugsun þar að baki, en slott hjá lögguliðinu að hafa áttað sig á þessu sona í tíma og verið komnir hingað austur, hefði nú alveg verið til í að vera fluga á vegg í morgun neita því ekki, enda MJÖG forvitin :P en annars er lítið að frétta nema það verður smá teiti hér á laugardagskvöld bara sona í tilfeni flutninga og solleis en annað ekki, vikan er ekki búin að vera upp á marga fiska frekar verið upp á nokkra Pólverja er búin að vera að fylgjast með nokkrum vinna og þið getið ímyndað ykkur hverning það var, það var lítið um vinnu þannig að ég hef ekkert gert alla vikuna :S en það er nú samt að fara að koma hlegi sem er magnað get nú ekki annað sagt  híhí :) en annars er það að ég er búin að panta flug 23 nóv og til baka 25 nóv og svo 6 des og til baka 11 des þannig þessa daga verð ég á suðvesturlandi

nóg í bili

líf og fjör 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 16:42:53 / thuridurr

hvað gæti klikkað

Jæja hvað haldiði að mín og vinkonur hennar hafi ákveðið að gera jú að panta rútu fyrir papaball næstkomandi laugardag voða stuð búnar að spread it around og allt og panta rútu og panta miða á ball og allur pakkinn bara eftir að senda mail á þá sem ekki hafði náðst í ennþá hvað gæti þá klikkað, tók sko geðveikan tíma í manna okkur upp í þetta, nei viti menn maður hefði haldið að rútufyrirtækið myndi hætta við að leigja einhverju pakki rútu, en nehei það var sko ekki rútu fyrirtækið og sennilega ekki fólkið sem hefði tekið rútuna nei heldur sjálf HLJÓMSVEITIN!!!!!  urrrrg!!!! mikið var ég svekkt og hinar píurnar líka þetta leit svo geðveikt vcel út en nei sjálfir PAPAR sjá sér ekki fært að mæta á austurlandið þessa vikuna:evil::evil::evil::evil::evil::evil::evil:  ég á bara ekki orð yfir þetta:( en hvað um það það þýðir ekkert í staðinn ætlum við Heba að halda innflutningspartý og bjóða vinum og velunnurum okkar hlakka mikið til þetta verður æði:D þannig ef þú þekkir mig og ég þig þá ertu velkomin;) en annars er lítið að ske bara að vinna var í dag að horfa á pólverja vinna og það var sko vinnan mín og auðvitað unnu þeir minnst þannig ég gerði ekki neitt alveg magnað :Þ en sona er þetta nú, jæja nóg í bili heyri í ykkur síðar

Líf og fjör 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 14:01:02 / thuridurr

úps gleymdi aðal málinu

P.S. ég er flutt :P heheh nýja heimilisfangið er tungumelur 8 ;) hehe

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 13:59:44 / thuridurr

september

já hver hefði trúað því að í dag 14 sept hefði verið hvítt í öllum fjöllum og slydda from hell í seinnipartinn í gær og þangað til í morgun??? júbb mikið rétt hér á austfjörðunum gerðist þetta þannig ða mín skellti sér af bæ og náði í nokkrar myndir myndir á flakkarann til að eiga eitthvða til að horfa á í harðindunum ef illa færi um helgina :P hehe en annars er bara allt gott að frétta sko ég er á námskeiði as wí spík voða stuð er reyndar alveg að sofna þessa stundina en að hlýtur ar bjargast ekki nema tveir tímar eftir af deginum:P helgin er held ég bara björt jafnvel að maðrr skelli sér á ball á morgun en annað er ekki ákveðið en alveg magnað hvað maður þarf ekkert að ákveða helgarnar því þær virðast alltaf fyllast þegar nær dregur að þeim :S sem er stundum ágætt. jah ekki er nú mikið framundan þannig séð fyrir utan bústaðarferð með rósunum í enda sept og svo fjölsk ferð í skagafjörð í okt og svo út að borða með rósunum í nóv og allt jólastúss, enda held ég að ég komi bara ekki fleiru af það sem eftir er af árinu :S sem er fúlt, hehe ég fattaði í gær að ég er bara búin að fara eina ferð í hérað síðan 17 ágúst pælið í því :P hehe og hér á reyðarfirði er bara æðislegt að vera get sko ekki sagt annað:D:D:D:D er búin að vera lala dugleg að fara út að labba eða synda;) og búin ða kaupa kort í ræktina þó svo að ég myndi sennilega ekki rata í hana ef ég færi í hana í dag :s humm ekki alveg nógu sniðugt :(en veit eiginlega ekki hvða ég á að bulla meira nema að það er papa bal eftir viku og einn dago og þeir sem vilja skella sér eru endilega beðnir um að mæta á svæðið þetta verður geðveikt :D:D:D:D sjibbí;) en jæja nóg í bili

Líf og fjör frá reyðarfirði:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 14:45:50 / thuridurr

ágúst

já hver hefði trúað því að í dag er komin 9 ágúst og það er eins og sumarið hafi bara verið að koma í gær án spaugs, en samt búin að gera heilan haug, þannig það vantar ekki, sit reyndar núna og nenni ekkert að gera búin að pakka niður ÖLLU neima úr eldhúsinu og af baðinu og pakka inn sófanum rúminu og borðinu þannig í rauninni er ég ekki búin að pakka neinu :S og mér sem finnst ég búin ða gera svo mikið :P en aldrei að vita nema ég rumpi einhverju af á eftir ;) já annars er af mér ekkert voða mikið að frétta var í eyjum á þjóðhátið sem var bara snilld fyrir utan það að ég er farin að dreyma magna því hann spilaði ÖLL kvöldin:S þannig ekkert meira magna dót í bili:Þ svo er ég nú að fá íbúðina afhenta um helgina :D:D:D:D:D:D sem er auðvitað bara snilld og ekkert annað ;D  ég hlakka sko geðveikt til það mikið að ég nenni ekki að pakka niður :$ skil það samt ekki alveg því mig hlakkar virkilega mikið til;) Sambýliskona mín er í kanada og reikna ég með henni til landsins í fyrramálið eða á morgun man það ekki alveg en hún fer allavega að koma;) sakna hennar nú soldið :P hehe en samt ekki þið getið ekki ímyndað ykkur hvernig er að sofa ein þá meina ég ALein í sínu eigins rúmi hehe það er bara snilld ég var að laus reikna þetta í gær og komst að því að ég hef ekki sofið ein í rúimi síðan í byrjun júlí:S ekki það að ég sé sona lauslát nei ég er annaðhvort í heimsókn eða sambýlingurinn uppi í hjá mér;) hehe þetta er soldið skondið en bara kúl samt:P en jæja lítið meira að segja nema er í fríi í dag í gær og á morgun og svo vinna eftir helgi;) sys kemur á sunnudaginn þannig ég verð ekki lengi ein í rúmi:S hehe en ég hlýt að geta bjargað því:Þ en jæja nóg í bili nema ein pæling sem vinkona mín var að velta fyrir sér í fyrradagskvöld, haldiði að við höfum einhverntí´mann verið rollur?? bara pæling og já eitt enn hver eru helstu umræðuefnin sem koma upp hjá þínum vinkonuhóp??  já eða vinahóp?? 

Líf og fjör

Þuríður upptekna að pakka:P 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 19:54:48 / thuridurr

íbúðakaup

heil og sæl ;) jæja núna er að koma að því á fimmtudaginn næsta kl 10 þá mun ég skrifa undir kaupsamning á íbúð á reyðarfirði, búin sem sagt að fá já við öllu og allt í keyi nema ég er hrikalega geðill þessa stundina þannig ef ég svara hvasst í símann þá vona ég að þið fyrirgefið mér það, er voða eitthvað tenz í dag vonast nú samt til þess að það lagist á næstu mínútum;) en best að hafa allan vara á, helgin var fín náði brúnku og smá bruna og sá fullt af flottum folum;) geitð túlkað það eins og þið viljið;) og voða stuð og núna er það vinna og ég að elta hann múmú alla daga allan daginn og upp í krana með honum þarf oft að passa mig á að elta hann ekki inn á klósett:/ hehe en næ alltaf að stoppa áður en hann lokar hurðinni;) hehe en jæja bara svona smá heyri í ykkur síðar

Líf og fjör 


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 20:39:48 / thuridurr

bjartir dagar??

já ég sit hér heima og bíð bara og bíð eftir að falsteignasalinn hringi já eða að ég fái tölvupóst um grænt ljós á meðan er ég ekki tilbúin að taka við hamingju óskum:/ ég vil bara ekki vera að fagna og gleðjast um of ef þetta gengur svo ekkert:/ það yrði hrikalega fúkt þannig ég tek öllu með fyrirvara. En það er nú meira að ske en bara þetta húsahús ég var fyrir austan um helgina fór á fimmtudaginn suður til Þorbjargar og Gunnars, það var æðislegt ða hitta þau og þau auðvitað alltaf jafn hress og kát sem er æði:D við áttum dúll kvöld yfir góðum mat dvd og nammi voða fínt;) á fös tók Þorbjörg mig í rúningu sem var ekki seinna vænna jeminn sko;) takktakk enn og aftur fyrir það Þorbjörg mín þetta er æði ;) kvaddi ég svo Þorbjörgu oh brunaði í sveitina til afa og ömmu alltaf jafn gaman að hitta þau fékk auðvitað að borða gat ekki komið mér undan því hehe alveg magnað, svo frifum við afi okkur í hvolsvöll og kíktum í bankann, sýsla, löggu,tryggingar og búð hehe tuðra kom með hún ætlaði sko ekki að hleypa afa af bæ án sín hehe hún er mögnuð þessi feita bolla híhí;) er við komum heim dreif ég mig í að þrífa líkin af bílnum mínum enda mikið af flusum á leiðinni jakk :Þ

Næst dreif ég mig út á heimaland að taka frá pláss undir tjaldvagn, húlbíl og tvo tjöld hehe fór í það að girða og voða fínt hehe Sigga frænka skammaðist sín nú reyndar soldið fyrir þetta hehe;) svo leið og leið og ég beið og beið og loksins komu pabbi og svo krakkarnir þá var farið í að tjalda og svo grilla og vá þetta endaði í huge grillveislu hehe en bara gaman;) vorum held ég 15 allavega ekkert smá gaman, kvöldið leið svo í dúlli á meðan aðrir drukku og drukku og sofnuðu ekki fyrr en undir morgun en mín svo stillt og góð var komin í tjald kl 12 ;) á lau var sólað sig í rúma tvo tíma og ber ég afrakstur sem erfiði eftir það híhí;) smá rauð. Loksins hófst svo ættarmótið og haldið var útí sveit að skoða gamlar heimaslóðir og labbað og sagðar sögur eftir það var boðið í kaffi og lék sólin við okkur allan tíman sem var snilld;) Svo drifu nokkrir sig í sund í gömlu laugina sem iðaði af lífi eins og venjulega hehe samt bara gróðurlífi hehe en það var nú allt í góðu, um kvöldið var svo hvasst, að við tókum niður tjaldið enda eftirgefanlegar stangir farnar að bogna :/ svo var komið að matnum og skemmtiatriðum sen enduði í að þeir"skemmtilegu" voru ekki svo skemmtilegir lengur og vegna drykkju og fólk ýmist á snepplunum eða bláedrú og var ekki að fíla stemmarann hehe ég var nú baraí eldhúsinu í uppvaski og hafði það bara gott þar hehe voða ánægð ;) svo um hálf 2 fór mín í tjaldvagn að sofa ;) við jón Helgi sváfum frammi í fortjaldi hjá Siggu og valda:) á sun var svo tekið til og saman, var reyndar vöknuð kl 6!!! og á lappir kl 8 skil ekki fólk sem fer í útilegu til að drekka sig blindfull gera sig af fíflum við að úthúða hvort öðru alveg mangað og á ættarmóti :S skondið en allavega lagði svo af stað heim um 2 og var komin heim kl 9 enda þá orðin þreytt og köld útaf miðstöðinni hehe gat ekki kreppt puttana úps:/ í gær var svo bara dúll labb sund taka til og stúss í pappírum og fleiru ;) jæja komið nóg í bili

Líf og fjör


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 21:55:44 / thuridurr

allt að ske

jæja hæhæ hér er ég loksins að nenna að skrifa eitthvað búið að vera margt að ske og voða stuð;) búin að fá mömmu í heimsókn sem var æði:D gerðum alveg fullt;) gengum sóluðum okkur fórum í heimsókn tókum rúnt niðurúr borðuðum löbbuðum meira og jájá vá það var æði:D:D:D:D:D síðasta vika er búin að vera soldið spes er nefnilega að reyna að kaupa mér íbúð og núna er allt klárt nema lán frá íbúðalánasjóði þannig ég þarf ða bíða krossleggja putta og allan pakkann sko;) :/ búin að vera stressuð og spennt og allt í einu vá.. þetta er rosalegt:D :D en samt gaman;) svo er ég og stelpurnar hér eða heba og tinna búnar að vera duglegar að labba uppi í skógi og ða fara í sund reyndar til að sóla okkur en ekki synda;) híhí sem er bara ágætt líka :P um síðustu helgi hélt svo Heba partý sona loka partý heima hjá sér því hún fer nú að flytja veit samt ekki hvenær en fer eittvhða í millitíðinni áur en við förum að leigja saman:D sem verður bara stuð;) allavega þá var þetta ekta stelpupartý með 4 kanadamönnum (38-55) hehe bara gaman sko þeir voru alveg að fíla þetta allavega, gaman í partý mikið spjallað og svona. SVo var haldið á ball:) jeyj það var sko stuð Todmobil eru bara æði ekki hægt að segja annað og vá hvað þau lifa sig inn í þetta:D hehe og vissuð þið að Eyþór Arnalds STAURblindi er bara lítill stubbur hehe bara fyndið bara lítill kall hehe

En annars er lítið að frétta ekkert ða ske í strákamálunum þeir annað hvort of gamlir, lofaðir eða vilja bara eitt!!! :Þ :( en það er allt í  lagi ég spjara mig nú alveg ein sko hehe, ég er búin að vera að vinna á reyðafirði þessa og síðustu viku í húsinu hans jóhanns og Tryggvi og Einar með mér við erum alveg hörku team ;) hehe jæja hef lítið meira að segja nema ég er að fara suður á bóginn á morgun:D:D:D verð hjá Þorbjörgu og Gunnari annað kvöld;) hlakka til að sjá þau og svo fer ég í sveitina á föstudaginn á ættarmót á Heimaland voða stuð og þar mun ég hitta fullt af liði þar á meðal systkini og pabba og afa og ömmu sem og fleiri bara stuð hehe

jæja nóg í bil nema ekki setja núlur saman við thai satai sósu :Þ það er frekar vont jakk

 

Líf og fjör;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 20:19:18 / thuridurr

steiktur fiskur

já það var svoleiðis í matinn í dag sem var fínt þangað til hann var orðin harður og brúnn:Þ já ég sagði harður og brúnn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :evil: en hvað um það ég borða þá ekki of mikið á meðan híhí sem er mjög jákvætt;) en lítið að frétta nema að ég skil ekki afhverju fólk fer til útlanda í sólina þega maður getur verið heima og sólin komið til manns, een hitinn á króknum fór í 19 gráður í dag og í 13 á egs og svo er han undarlega hár alltaf á Dyrhólum eða í kringum 28 gráðurnar ég þarf eitthvað að fara ða skoða þann hitamæli;)  en neinei vonandi er geðveikt gaman hjá þessum dúllum, en auðvitað þurfti ég að drekkja sorgum mínm á lau yfir að hafa ekki getað farið út hehe neinei en ég datt smat í það hittumst hér ég Heba Gyða og Magga elduðum og fórum svo á skrall ekkert smá gaman brunuðum fyrst á Reyðarfjörð fórum þar í partý hjá nokkrum vinum það var geðveikt gaman og þessar elskur sem koma hingað frá canada og eru að vinna með okkur, eru algjör æði. Tóku vel á móti okkur og svaka gaman bara þrátt fyrir að þurfa ða vera svona langt frá sínum heimabæjum en við reynum auðvitað að stytta þeim stundir :haha: eftir stutta dvöl á Reyðarfirði var haldið aftur heim í Hérað og skellt sér á diskó geðveikur stemmari á leiðinni uppúr bland í flöskum og allur sá pakki hehehe en svo mættum við á diskó og við vorum nr. 3 4 og 5 inn á svæðið8| og er við komum inn voru bara PÓLVERJAR8|8|8| þannig við settumst hjá dyraverðinum sem var btw sætur og spjölluðum við hann í svona 20 mín og það kom enginn inn á meðan:$ þetta var nú orðið soldið skrítið, neita því ekki og þá var farið á barinn og jé minn hann var ekki ókeypis drykkurinn8| þannig við tókum til okkar mála skelltum okkur til Gyðu náðum í skvísu og dooleys og klaka hehe allt er hey í harðindum;) og er við komum aftur var bara komið slatti af liði og það rættist bara heldur betur úr þessu diskói, því lauk svo snögglega eða kl rúmlega 3 og þá var haldið heim í ból og mikið var það gott:P sunnudagurinn fór svo í þynnku og rúnt og já svo nokkra bjóra til að ná sér niður8) neinei þetta er nú ekki svo slæmt og svo í gær var það rúntur allan daginn í leit af strákum og ekkert gert, HVAR ERU ALLIR SÆTU STRÁKARNIR hér fyrir austan, gufuðu þeir upp eða??? en jæja nóg í bili heyrumst seinn ao g já ég er að búa til mynda síðu;)

Líf ogFjör 


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 18:56:38 / thuridurr

útlönd

neinei ég er ekki að fara til útlanda en flestir hinir eru að fara, mikið samgleðst ég þeim og mikið verður gaman, það þýðir víst ekki að segja það verði bara gott veður hér líka því það er bara kuldi og trekkur og ekkert annað framundan, og núna er ég ekki að ljúga en nefið á mér var nær dauða en lífi í dag ég var 7 mínutur að blása í það lífi, sem hafðist á endanum þegar ég var byrjuð að beita nefhnoði;) hehe ég verð að segja ykkur, ég er búin að vera að vinna alla vikuna ótrúlegt en satt en ekki við rafmagn nei á skotbómulyftu, og að ferja mann milli staða og svo bíð ég bara þangað til hann er búinn og fer með hann á næsta stað, í gær var ég sem sagt í lyftunni allan daginn alveg til 5 svo þegar ég kom niður og var sest niður haldiði að ég hafi ekki verið komin með sjóriðu og ég er ekki að djóka, ég vaggaði bara fram og aftur og ég veit ekki hvað voða nice eitthvað eins og ég væri dauða drukkin hehehe, svo beið og beið og aldrei kom rútan sem ég ætlaði með heim þannig á endanum hitti ég á einn eða hann á mig og bauð mér far svo ég þyrfti nú ekki að húkka mér far, svo á leiðinni þá vaggaði ég bara eins og versta bytta og gaurinn skildi ekki neitt í neinu hehe. en annað er ekki að segja varð samt að segja ykkur þetta hehe, svo er nú löng  helgi framundan spurnig hvað maður eigi að gera;)  en jæja góða ferð dúllur út í fyrramálið ég lofa að vera með í anda læt mig ekki vanta þar;) og þið hin ykkur var nær að vera ekki að fara til útlanda hehe;)

Líf og fjör

Þurý í kulda og hríð:) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
eitthvað fyrir kvenþjóðina
strákar eitthvað fyrir ykkur
handa öllum:)
útvarp á netinu algjör snilld:)
MYNDIR!!!!!